top of page
  • Forfatters billedeGuðmundur Daníelsson

Skrifað undir samning við Fjarskiptasjóð

Þann 23. Mars 2018 skrifuðu fulltrúar fjarskiptasjóðs og sveitarfélaga undir 24 samninga um styrki fjarskiptasjóðs vegna ljósleiðaravæðingar sveitarfélaga í tengslum við landsátakið Ísland ljóstengt. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, staðfesti samningana með undirskrift sinni og fór athöfnin fram í ráðuneytinu.

Sveitarfélögin 24 fá samtals 450 milljónir króna í styrki, á bilinu 2 til 74 milljónir króna hvert. Auk styrkja frá fjarskiptasjóði þá leggja íbúar og sveitarfélög að lágmarki 350.000 kr. af mörkum vegna hverrar tengingar en í mörgum tilfellum er þörf á töluvert hærra framlagi heimamanna. Í þeim tilfellum að sveitarfélag ætlar ekki að eiga og reka eigið kerfi greiða fjarskiptafyrirtæki fyrir það að eignast slík kerfi eða reka fyrir hönd sveitarfélagsins.

Ráðherra skrifaði jafnframt undir samtals100 milljón króna samninga við 15 sveitarfélög um sérstaka byggðastyrki á bilinu ein til 15 milljónir króna í tengslum við Ísland ljóstengt.

Í hlut Flóahrepps féllu um 74 milljónir í styrk til verkefnisins. Eydís Indriðadóttir sat fundinn f.h. Flóahrepps


30 visninger0 kommentarer

Seneste blogindlæg

Se alle
bottom of page